20.7.2011 | 23:57
Makríll eins og engisprettur umhverfis landið
Makríl, þessum hraðsynta fiski án sundmaga, fjölgar stöðugt við Íslandsstrendur. Hvað skyldu vera stórar makrílgöngur í íslenskri auðlindalögsögu núna? Þessari spurningu þarf Hafrannsóknastofnunin að svara, og það sem allra fyrst. Árið 2009 veiddust um 150 þúsund tonn af makríl í íslenskri lögsögu - með afar lítilli sókn og fáum skipum. Heldur meira síðasta ár, man hins vegar ekki hversu mikið. Ef við gefum okkur að veiðst hafi c.a. 2% af því magni sem var á ferðinni við Ísland í fyrra - þá hafa verið ca. 7,5 milljónir tonna á ferðinni. ,,Fróðir" menn segja að magnið nú 2011 gæti verið 23 milljónir tonna. Sjaldan er rætt um vistkerfi hafsins og alla þessa verndun og uppbyggingu fiskistofna sem sjávarútvegsráðuneytið undir stjórn Jóns Bjarnasonar klifar stöðugt á. ,,Beitarhagar" hafsins er auðvitað takmörkuð og dýrmæt auðlind en vaxandi gengd makríls étur sig áfram í lögsögunni vestur með Íslandi bæði með suðurströndinni og norðurströndinni og er nú komin inn í grænlensku lögsöguna. Mjög erfitt er að mæla magn makríls með bergmálmælingum þar sem makríll hefur engan sundmaga. Ef það eru 23 milljónir tonna af markíl á ferðinni kringum landið er fæðuþörfin á 3 mánuðum varla undir 40 milljónum tonna af fæðu. Undanfarin ár hafa makrílgöngur að vori skilið eftir sviðið varp hjá lunda, kríu, ritu og fleiri sjófuglum víða um land, en það er ekki sett í neitt samhengi. Nú er rætt um að rannsaka af hverju sandsíli eru nánast horfin, en er það ekki augljóst að makríll er búinn að éta upp alla fæðu á slóðinni. Makrílgangan er því eins og engisprettufaraldur, nema bara undir yfirborði sjávar.
Oft er þörf en nú er nauðsyn áður en það fer enn verr en þegar er orðið í hafinu. Eitt ráðið er auðvitað að veiða nógu mikið af makrílnum. En Hafrannsóknastofnun á sannarlega næsta leik.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)