21.10.2010 | 23:59
Í saltfiskvinnslunni aukast hráefniskröfurnar og mikil verðmætasköpun gæti átt sér stað í útvötnunarferlinu
Á Sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin ár í haust, sú fyrsta sem gætti hlutleysis, ræddi Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og markaðsstjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal um vermætasköpun í íslenskum sjávarútvegi og benti á að þorskur hefði skilað mestu útflutningsverðmæti afurða eftir tegundum árið 2009, eða 36%, síld 12%,ýsa 10%, karfi7%, ufsi 6%, rækja 5%, gráðlúða 4% og aðrar fisktegundir samtals 20%. Kristján taldi að bregðast mætti við samdrætti í geininni m.a. með samruna fyrirtækja, sanþjöppunaflaheimilda, sérhæfingu og auknum umsvifum fiskmarkaða. Öflug sjávarútvegsfyrirtæki ættu þess kost að auka sókn í nýja fiskistofna, auk þróun og fjárfestingu í nýrri tækni, efla markaðsumsvif og sanhæfa betur en áður veiðar, vinnslu og markaði. Kristján minnti á að árið 1981 hefði þorskafli landsmanna verið 460 þúsund tonn, svo nú mætti aðeins veiða um 34% þess þorskafla sem þá fékkst úr sjó.
,,Ferskar afurðir eru oft verðmætari en frystar, sagði Kristján, og auka mætti hlutfall hnakkastykkja úr flaki, það gæfi auk þess aukið magn og selja mætti fleiri tegundir ferskar á markað. En fyrst og fremst þarf að auka framleiðslu til manneldis.
,,Það á sér stað mikil þróun í vinnslunni og í frystingu eru að koma fullkomnari og nákvæmari flökunarvélar, flæðilínur, skurðarvélar, flokkunarbúnaður, samvalsvélar, pökkunarvélar, vogir og margt fleira. Búast má við aukinni verðsamkeppni á heimsmarkaði og þar munu láglaunalönd eins og Kína láta stöðugt meira til sín taka.
Aukin verðmæti felast í aukahráefniÍ saltfiskvinnslunni aukast hráefniskröfurnar og vinnslutæknin að breytast, tekin upp margskiptur ferill og mikil verðmætasköpun gæti átt sér stað í útvötnunarferlinu. Aukin verðmætasköpun gæti einnig átt sér stað í sjófrystingunni en þar hefur átt sér stað lítil vöruþróun. Frekari nýting aukahráefnis getur falist í hausum, klumbrum og hryggjum, með betri nýtingu og meðferð á lifur í niðursuðu og lýsisvinnslu og hægt er að auka betur nýtingu á hrognum, lifur, svilum, maga, roði og fleiru. Stórir og jafnfram lítt nýttir markaðir væru fyrir fiskiprótein,
Kristján benti á mjög vannýttar tegundir hér við land, s.s. hvali, makríl, miðsjávarfiskinn gulldeplu en nefndi sérstaklega rauðátu. Norskt fyrirtæki hefur hafið veiðar og vinnslu í tilraunaskyni en áætlað að í Norskahafinu sé 350 til
600 milljónir tonna af rauðátu. Mögulega er hægt að nota rauðátu til framleiðslu á afurðum til manneldis. Kristján taldi það því ofar öllum vafa að til staðar væru miklir möguleikar til aukinnar verðmætasköpunar í sjávarútvegi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2010 | 23:18
Ráðþrota ríkisstjórn hækkar útsvar en enn sitja ráðstafnir til hjálpar heimilinum á hakanum
Þriðjungur af heildarniðurskurði á útgjöldum ríkisins verður í heilbrigðis- og velferðarkerfinu, samkvæmt fjárlögum næsta árs. Rekstur ríkisins á þessu ári er mun betri en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir það hækka skattar, aðrir en tekjuskattar, verða hækkaðir um ellefu milljarða króna, en enn bólar ekkert á ráðstöfunum til hjálpar heimilinum, nema síður væri. Ríkisstjórnin er greinilega alveg ráðþrota.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að útgjöld ríkisins verði skorin niður um þrjátíu og tvo milljarða á næsta ári. Þar vegur nokkuð þungt niðurskurður í velferðarkerfinu, en að raunvirði nemur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu 6,2 milljörðum króna.Slík upphæð nemur hálfum kostnaði við Héðinsfjarðargöng. Undir liðnum almannatryggingar og velferðarmál er skorið niður um 4,5 milljarða króna. Alls eru þetta 10,7 milljarðar króna. En hvernig ver ríkisstjórn sem kennir sig við norræna velferð slíkan niðurskurð í málaflokknum?Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að svo stór hluti allra útgjalda ríkisins rennur til félags-, heilbrigðis- og menntamála að það sé bara allt of lítið eftir til að taka á sig niðurskurð ef ekkert væri hróflað við þar. Það er hins vegar jákvætt að rekstur ríkissjóðs er betri en fjárlög þessa árs gerðu ráð fyrir. Í fjárlögum ársins 2010 var gert ráð fyrir að hallinn yrði tæplega nítíu og níu milljarðar króna, en núverandi áætlun gerir ráð fyrir sjötíu og fimm milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs á þessu ári.
Fjárlögin gera ráð fyrir breytingum á skattkerfinu. Þannig mun fjármagnstekjuskattur einstaklinga og skattur á hagnað fyrirtækja hækka um tvö prósentustig úr átján í tuttugu prósent. Erfðafjárskattur mun hækka úr fimm í tíu prósent og þá verður tekið upp sérstakt vörugjald á áfengi og tóbak í Fríhöfninni á næsta ári. Tekjuskattur verður lagður á úttekt séreignasparnaðar og tekinn verður upp sérstakur skattur á bankastarfsemi. Þessar hækkanir eiga að skila ríkissjóði ellefu milljörðum króna í auknum skatttekjum. Megum við sauðsvartur almúginn ekki njóta þess í einhverju?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)